Starfsvettvangur verkfræðinga er afar fjölbreyttur enda sérsviðin mörg. Störf verkfræðinga eru einkum tengd hönnun, áætlanagerð, skipulagsmálum, stjórnun, eftirliti og rannsóknum. Í flestum tilvikum er tölvutækni og hugbúnaðargerð ríkjandi þáttur í starfinu. Verkfræðingur er lögverndað starfsheiti.
Megingreinar verkfræðinnar eru þrjár; umhverfis- og byggingaverkfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði og véla- og iðnaðarverkfræði en undirgreinar fjölmargar svo sem efnaverkfræði, fjármálaverkfræði, hátækniverkfræði, heilbrigðisverkfræði, hugbúnaðarverkfræði og rekstrarverkfræði en í þessum greinum öllum er nám í boði við íslenska háskóla.
Verkfræðingar starfa mjög víða en sem dæmi má nefna verkfræðistofur, fjármála- og heilbrigðisstofnanir og framleiðslu-, hugbúnaðar-, ráðgjafar- eða iðnfyrirtæki.