Næsta skref
Upplýsingar um störf á íslenskum vinnumarkaði, námsframboð, ráðgjöf og raunfærnimatsleiðir.
Verkefnið
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf unnu að þróun Næsta skrefs árin 2012-2014 í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila.
Vefurinn var þá hluti af IPA styrktu verkefni, sem FA stýrði, og tengdist þróun raunfærnimats.
Næsta skref er í dag almennur upplýsingavefur um nám og störf.
Af hverju þessi vefur?
Vönduð upplýsingaþjónusta um störf og námsleiðir er mikilvæg fyrir margra hluta sakir. Slíkt stuðlar að vel ígrunduðu námsvali og felst hagkvæmnin því bæði í minni kostnaði vegna brotthvarfs og hins að þá má í auknum mæli beina hefðbundinni ráðgjöf að þeim sem þurfa mest á henni að halda. Þetta er ein hugmyndin að baki NæstaSkref.is líkt og sambærilegum vefsvæðum nágrannaþjóða okkar.