Símenntun

Nám er ævistarf – fyrir alla!

Ýmis tækifæri fyrir fólk sem vill bæta við sig þekkingu eða færni og auka með því eigin verðmæti sem starfskraftur.

Fjórtán símenntunarmiðstöðvar

Um land allt bjóða upp á fjölbreytta þjónustu;
raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf, íslenskunámskeið, greiningar á fræðsluþörfum og almenna endurmenntun.

Nám fer víða fram

Styrkleikar okkar, reynsla og þekking er nokkuð sem ekki skyldi vanmeta. En stundum þarf aðstoð við að gera slíkt sýnilegt og bæta við. Það er aldrei of seint.

Símenntunarmiðstöðvar eftir landshlutum

Nám, raunfærnimat og ráðgjöf.

Fyrirmyndir í námi fullorðinna 2022

„Ég byrjaði á að fara í mat á almennri starfshæfni og það gekk glimrandi vel og þar fæ ég sjálfstraust og trú á að ég geti meira.“
„Æðislegur tími; sjálfstraustið, sjálfsvirðingin og trú á eigin getu óx og ég ákvað að taka að mér stærri verkefni og kláraði Menntastoðir.“

Fyrirmyndir í námi fullorðinna 2020

„Ég hafði lengi trúað því að ég gæti ekki lært stærðfræði. En í Menntastoðum var kennari sem útskýrði á mannamáli og ég náði mjög góðum árangri.“
„Ég hafði ekki setið á skólabekk í 25 ár en áttaði mig fljótlega á að kannski væri ég með eitthvað í höndunum sem væri hægt að byggja á.“

Símenntunarmiðstöðvar

Jákvætt viðhorf og stuðningur gagnvart nýjum viðfangsefnum

– áhugasvið, markmið, raunfærnimat, hindranir

Fjölbreyttar námsleiðir til að styrkja stöðu á vinnumarkaði

– geta leitt til styttingar á námi í framhaldsskóla

Náms- og starfsráðgjöf í boði um land allt

– fyrst og fremst ætluð 18 ára og eldri

Náms- og starfsráðgjöf