STARF

Bókmenntafræðingur

Bókmenntafræðingar fást við rannsóknir þar sem leitast er við að skýra og túlka bókmenntir til að efla á þeim almennan skilning og áhuga.

Starfsvettvangur bókmenntafræðinga getur verið mjög fjölbreyttur. Sem dæmi má nefna kennslu á öllum skólastigum auk starfa við vísinda- og rannsóknastofnanir, auglýsingastofur, bókaforlög, bókasöfn, fjölmiðla og leikhús. Þá nýtist fræðileg þekking bókmenntafræðinga einnig við ritstörf og útgáfustarfsemi.

Bókmenntafræðingar sérhæfa sig oft í ákveðnum greinum bókmennta til dæmis einstökum tímabilum, stefnum eða höfundum.

Helstu verkefni
  • bókmenntarannsóknir
  • ritstörf
  • ritstjórn og frágangur handrita
  • hugmynda- og textasmíði og ráðgjöf um textagerð
  • námsefnisgerð
  • þýðingar og prófarkalestur
Hæfnikröfur

Bókmenntafræðingur þarf að vera vel ritfær, hafa góð tök á íslensku máli og umtalsverða þekkingu á ensku. Einnig er æskilegt að geta skilið texta á norðurlandamálum og frönsku eða þýsku. Frumkvæði og öguð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar auk þess að geta unnið sem hluti af teymi. Æskilegt er að hafa áhuga á bókmenntum, textagerð, leiklist, ljóðum og menningarsögu.

Námið

Almenn bókmenntafræði er kennd við Háskóla Íslands. Grunnnám til BA – gráðu  er þrjú ár en einnig hefur verið boðið upp á framhaldsnám í greininni.

Bókmenntafræði
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Kerfisfræðingur

Leikjaforritari

Sagnfræðingur

Stærðfræðingur

Stjörnufræðingur

Veðurfræðingur

Þjóðfræðingur

Náms- og starfsráðgjöf