Félagsfræðingar starfa við að greina og efla skilning á ólíkum sviðum þjóðfélagsins. Rannsóknir félagsfræðinga snúa annars vegar að þróun samfélaga en hins vegar að samskiptum einstaklinga í milli og við stofnanir samfélagsins. Í starfinu felst að safna gögnum um viðhorf, atferli og samskipti fólks og leitast við að lýsa samspilinu milli þessara þátta í fræðilegum eða hagnýtum tilgangi.
Félagsfræðingar vinna hvort tveggja hjá hinu opinbera og í einkageiranum til dæmis við stjórnsýslu, félagsþjónustu, kennslu, rannsóknir eða ráðgjöf. Í starfi félagsfræðings gætirðu sérhæft þig í greinum á borð við fjölmiðlafræði, afbrotafræði, heilbrigðis- og félagsmál eða rannsóknum ýmis konar.