Ljósahönnuðir vinna við að hanna lýsingu á hvers kyns viðburðum, svo sem í leikhúsum, á tónleikastöðum eða í sjónvarpi, kvikmyndum og auglýsingagerð. Ljósahönnuðir ákveða til dæmis, í samstarfi við leikstjóra, hvernig stemningu kalla á fram á sviði og skipuleggja lýsingu í samræmi við það, oftast í samvinnu við ljósamenn sem „keyra“ viðburðinn.

Helstu verkefni
  • hanna lýsingu sem hentar viðkomandi aðstæðum á sviði
  • undirbúa skipulag lýsingar á sama tíma og verið er að æfa sýningu
  • skipuleggja lýsingu inn í ákveðið rými með ljósaborði
  • skipuleggja ljósabreytingar; raða kösturum í rétta stöðu og lit
  • búa til grunnlýsingu og byggja ofan á hana til að ná æskilegri stemningu eða útliti
  • búa til ljósabreytingar, setja inn í tölvu eða ljósaborð
  • raða ljósabreytingunum í rétta röð í tölvu eða ljósaborð fyrir sýningu
Hæfnikröfur

Ljósahönnuðir þurfa að hafa nokkra þekkingu á rafmagni, listræna sýn og áhuga á þeirri tækni sem tengist ljósahönnun. Mikilvægt er að geta unnið af nákvæmni og þolinmæði í samstarfi við aðra, svo sem leikstjóra, leikmyndahönnuði og ljósamenn. Ljósahönnuðir vinna mikið með ljós, liti, kastara og tölvubúnað. Vinnan er oft í törnum sem tengjast undirbúningi tiltekins viðburðar.

Rafmennt – fræðslusetur rafiðnaðarins

Námið

Ekki er um að ræða sérstakt nám í ljósahönnun á Íslandi en starfstengd námskeið kunna að vera í boði. Erlendis má hins vegar finna nám fyrir ljósahönnuði. Einnig má benda á nám í rafvirkjun en grunn- og framhaldsnám í rafiðngreinum er að finna við marga framhaldsskóla.

Rafvirkjun
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Búningahönnuður

Fatahönnuður

Förðunarmeistari

Forritari

Gervahönnuður

Gull- og silfursmiður

Hljóðhönnuður

Kerfisfræðingur

Náms- og starfsráðgjöf