Búningahönnuðir ákveða heildarútlit sýningar í samstarfi við leikstjóra og aðra listræna stjórnendur og hanna búninga í samræmi við það. Í starfinu felst að teikna búninga eða setja upp á annan myndrænan hátt ásamt því að velja efni og liti sem henta heildarútliti og notkun búninga hverju sinni.

Sem búningahönnuður gætirðu til dæmis unnið í stórum sem smáum leikhúsum, í sjónvarpi eða sem verktaki við kvikmyndagerð.

Helstu verkefni
  • greina handrit, teikna búninga og taka þátt í undirbúningi sýningar eða verkefnis
  • ákveða útlit sýningar í samráði við leikstjóra og leikmyndahönnuð
  • lesa handrit og vinna heimildavinnu, til dæmis í sambandi við ákveðið tímabil
  • velja efni, liti, áferð og snið búninga
  • huga að förðun og hári og samræmi þess, búnings og heildarútlits leikmyndar
  • meta hvernig búa á til einstaka hluti búninganna í sýningum
  • vinna að úrlausnum ýmissa vandamála er varða búninga og koma upp á æfingatímum
  • koma hönnun í framkvæmd til búningagerðarfólks á verkstæði
Hæfnikröfur

Búningahönnuðir þurfa að hafa gott hugmyndaflug og geta teiknað upp eigin hugmyndir. Mikilvægt er að skilja sniðagerð, hafa áhuga á hönnun og sögu auk þess að þekkja til þess hvernig spila má saman efni, litum og áferð. Skipulagshæfileikar og geta til að vinna með öðrum eru einnig nauðsynlegir eiginleikar. Búningahönnuðir vinna mikið með pappír og teikniáhöld auk tölvuvinnu.

Bandalag íslenskra listamanna

Námið

Búningagerð er ekki kennd sérstaklega á Íslandi. Fatahönnunarbraut er hins vegar við Listaháskóla Íslands en um er að ræða þriggja ára nám til BA – gráðu.

Þá eru tengdar greinar á borð við hönnun og nýsköpunfatatæknikjólsaum og klæðskurð kenndar við Tækniskólann auk fata- og textílkjörsviðs listnámsbrauta nokkurra framhaldsskóla.

Fatahönnun
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Dansari

Fatahönnuður

Förðunarmeistari

Gervahönnuður

Gull- og silfursmiður

Hljóðhönnuður

Landslagsarkitekt

Náms- og starfsráðgjöf