STARF

Gervahönnuður

Gervahönnuðir búa til gervi og sérstök útlitseinkenni, svo sem skalla, skegg, nef og bólur, á persónur í leikhúsi, kvikmyndum, auglýsingum og annars staðar þar sem þörf er á slíkum útlitsbreytingum.

Gervahönnuðir starfa flestir sem verktakar innan kvikmyndaiðnaðarins og kallast þá leikgervahönnuðir, oftast í samstarfi við annað fagfólk á borð við búningahönnuði, leikstjóra, ljósamenn, hljóðmenn, leikara og förðunarfólk. Í einhverjum tilfellum er hárkollugerð hluti starfsins, aðallega innan leikhúsanna.

Helstu verkefni
  • lesa handrit, hitta listræna stjórnendur og undirbúa frumsýningu verks
  • leggja fram hugmyndir að útliti sögupersónu
  • skapa heildarútlit í samstarfi við leikara og listræna stjórnendur
  • grímugerð, hönnun á gervum, förðun og hárgreiðsla
  • vera til taks á meðan sýningum stendur
  • halda vinnuaðstöðu hreinni, fjarlæga farða og gæta þess að hárkollur og aukahlutir séu í lagi
Hæfnikröfur

Gervahönnuðir þurfa að vera nákvæmir, skapandi, með gott hugmyndaflug og eiga gott með að kynna hugmyndir sínar fyrir öðrum. Mikilvægt er að geta hvort tveggja unnið sjálfstætt og í teymi með öðrum en starfið getur oft á tíðum verið krefjandi og vinnutími óreglulegur.

Bandalag íslenskra listamanna

Námið

Nám í gervahönnun er ekki í boði á Íslandi en við Dramatiska Instituded i Svíþjóð hefur verið hægt að ljúka BA gráðu í greininni.  Hér gætu þó starfstengd námskeið verið í boði s.s. leikhúsförðun eða hárkollugerð.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Dansari

Fatahönnuður

Hljóðhönnuður

Leikmyndahönnuður

Listfræðingur

Skjalavörður

Tækniteiknari

Náms- og starfsráðgjöf