STARF

Tölvunarfræðingur

Tölvunarfræðingar setja upp tölvubúnað og sjá um rekstur, viðhald og breytingar á vél- og hugbúnaði. Í starfinu felast margvísleg verkefni tengd upplýsingatækni, gagnasöfnum, vefsmíði, netumsjón og forritun. Tölvunarfræðingur er löggilt starfsheiti.

Í starfi sem tölvunarfræðingur gætirðu unnið víða svo sem í tölvudeildum fyrirtækja eða hugbúnaðar- og tæknifyrirtækjum oft í samstarfi við aðra sérfræðinga á borð við verkfræðinga, kerfisfræðinga og rafeindavirkja.

Helstu verkefni
  • búa til og smíða forrit og hugbúnaðarkerfi
  • greina þarfir á sviði upplýsingatækni
  • forrita ný kerfi, setja þau upp og skilgreina notkunarreglur
  • viðhald hugbúnaðar; breyta forritum, kerfum og handbókum
  • fylgjast með nýjungum
  • þróa tæki, tól og aðferðir til að bæta tölvuumhverfi almennings
  • kennsla og rannsóknir
Hæfnikröfur

Tölvunarfræðingur þarf að hafa mikinn áhuga á tölvum og virkni þeirra. Mikilvægt er að vera glöggskyggn á tölur og rökvís, geta hugsað í lausnum og vera fljót/ur að greina vandamál. Starf tölvunarfræðings er fjölbreytt og krefst mikillar nákvæmni og þolinmæði.

Félag tölvunarfræðinga

Námið

Grunnnám í tölvunarfræði er þriggja ára háskólanám til BS – gráðu við Háskóla Íslands og BSc – gráðu við Háskólann í Reykjavík. Framhaldsnám til meistaragráðu er einnig í boði við báða skólana.

Tölvunarfræði
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Forritari

Hljóðhönnuður

Hljóðmaður

Kerfisfræðingur

Leikjaforritari

Leikjahönnuður

Ljósahönnuður

Ljósamaður

Náms- og starfsráðgjöf