Tölvunarfræði er grunnnám á háskólastigi. Í náminu er meðal annars farið í almenna tölvunarfræði, forritunarmál og hvernig búa má til vefi, stærðfræðigreiningar og hugbúnaðarþróun. Nemendur geta kynnt sér gagnvirkni manns og tölvu, tölvuleikjaþróun, viðskiptafræði og reiknifræði.

Náminu lýkur með BS/BSc prófi. Námstími er þrjú ár.

Kennsla

Nám í tölvunarfræði hefur verið kennt við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám. Mælt er með að umsækjendur hafi lokið ákveðnum einingafjölda í stærðfræði og raungreinum.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í tölvunarfræði er fjölbreytt og hægt að sérhæfa sig á ýmsum sviðum sem einnig eru breytileg eftir skólum. Námið er kennt í staðnámi og skiptast námskeiðin í skyldu- og valnámskeið. Sjá nánar um tölvunarfræðinámið hjá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

Að loknu námi

Að loknu BS/BSc prófi er hægt að sækja um leyfi fyrir starfsheitinu tölvunarfræðingur. Möguleiki er að fara í framhaldsnám í tölvunarfræði eða öðrum greinum.

Störf
Forritari
Tölvunarfræðingur
Vefhönnuður
Leikjaforritari
Kerfisfræðingur
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf