STARF

Jöklaleiðsögn

Jöklaleiðsögumaður leiðir ferðafólk um jökla í dagsferðir og/eða lengri göngur. Ferðast er með einstaklinga eða hópa og fjallað um náttúru, lífríki, samfélag og menningu á sama hátt og almennir leiðsögumenn.

Helstu verkefni
  • útfærsla eða skipulagning ferða og gönguleiða um jökla við sumar og vetraraðstæður
  • taka á móti ferðafólki fyrir hönd ferðaskrifstofu og aðstoða þá
  • veita upplýsingar um klæðnað og veðurútlit
  • leiðbeina um notkun öryggisútbúnaðar, s.s. línu, brodda og ísaxa
  • stuðla að öryggi ferðafólks og bregðast við óvæntum atburðum
Hæfnikröfur

Jöklaleiðsögumenn verða að hafa aflað sér menntunar sem leiðsögumenn eða lokið nýliðaþjálfun Björgunarsveita og jafnframt sérhæfðari menntun og reynslu í jöklaleiðsögn. Afar mikilvægt er að kunna að nota búnað fyrir fjallamennsku svo sem mannbrodda, ísaxir, línur, karabínur og sprungubjörgunarbúnað, geta valið leiðir og metið snjóflóðahættu.          

Jöklaleiðsögumenn þurfa að hafa námskeiðið Jöklaleiðsögn AIMG 1 og AIMG 2 hjá Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna, Fjallaskólanum eða sambærilegt námskeið annars staðar. 

Mikilvægt er að vera í góðu líkamlegu formi og búa yfir mikilli reynslu af útivist, ferðalögum og útilegum jafnt að sumri sem vetri.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Námið

Nám fyrir verðandi leiðsögumenn er við Menntaskólann í Kópavogi auk þess sem slíkt nám hefur verið í boði við Endurmenntun Háskóla Íslands og Símenntun Háskólans á Akureyri.

Leiðsögunám
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Barþjónn

Ferðamálafræðingur

Ferðaráðgjafi

Ferðaþjónn

Flotastjóri

Flugfreyja/flugþjónn

Flugmaður

Flugumferðarstjóri

Náms- og starfsráðgjöf