STARF

Ferðamálafræðingur

Ferðamálafræðingar vinna við stjórnun og skipulagningu, markaðssetningu og kynningu ferðamála. Í starfinu felast einnig verkefni tengd skipulags- og umhverfismálum, leiðsögn ferðamanna og landvörslu auk þess sem ferðamálafræðingar starfa í tengslum við fjölmiðla, kennslu og rannsóknir.

Í starfi sem ferðamálafræðingur gætirðu hvort tveggja starfað hjá einkafyrirtækjum og hjá ríki eða sveitarfélögum. Oftast er um að ræða skrifstofuvinnu þó einnig sé unnið í þjóðgörðum og á margvíslegum ferðamannastöðum.

Helstu verkefni
  • skipuleggja og bóka ferðir
  • verkefnastjórnun; til dæmis vegna skipulags á vinsælum áfangastöðum
  • kennsla og rannsóknir á háskólastigi
  • aðstoð við markaðssetningu
  • skipuleggja nýjar ferðir og finna nýja áfangastaði
  • fræðsla og upplýsingagjöf
Hæfnikröfur

Ferðamálafræðingar þurfa að hafa áhuga á ferðalögum og ferðaþjónustu. Þekking á landi og þjóð, umhverfismálum og þróun ferðamennsku er mjög æskileg ásamt skipulagshæfni, þekkingar á áætlanagerð og hæfni í mannlegum samskiptum.

Ferðamálastofa

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Námið

Ferðamálafræði er nám á háskólastigi. Við Háskóla Íslands er grunnnám til BS – gráðu þriggja ára nám og einnig í boði tveggja ára framhaldsnám til meistaragráðu. Við ferðamáladeild Háskólans á Hólum er í boði eins árs diplómanám auk náms til BA – gráðu og meistaraprófs.

Ferðamálafræði
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Barþjónn

Ferðaþjónn

Flotastjóri

Flugfreyja/flugþjónn

Flugmaður

Flugumferðarstjóri

Flugvirki

Framreiðslumaður

Náms- og starfsráðgjöf