Hótelþerna sér um að herbergi hótels séu hrein, í röð og reglu og tilbúin fyrir gesti. Hótelþerna sér einnig um þrif á herbergjum meðan á dvöl stendur. Yfirleitt er um vaktavinnu að ræða og útvegar vinnuveitandi oftast vinnufatnað.

• skipta um sængurver, lök og handklæði
• búa um rúm
• ryksuga gólf og teppi
• þurrka af og þrífa húsgögn
• fylla á sápur, sjampó og aðrar vörur sem eru í boði hótelsins
• fylla á smá-bar herbergis
Hótelþerna þarf að geta unnið hratt og af nákvæmni og hafa metnað til að aðkoma gesta að herberginu sé sem ánægjulegust. Hótelþerna þarf einnig að vera áreiðanleg, heiðarleg og bera virðingu fyrir einkalífi fólks. Æskilegt er að vera í góðu líkamlegu formi þar sem starfið reynir nokkuð á slíka þætti.
Ekki er gerð formleg krafa um menntun en ýmis starfstengd námskeið kunna að vera í boði.
Náms- og starfsráðgjafar hjálpa til við upplýsingaleit og aðstoða að finna leiðir til að bæta færni í námi og efla í starfi.