STARF

Flokkstjóri í vinnuskóla

Flokkstjórar og leiðbeinendur í vinnuskólum skipuleggja og stýra sumarvinnu 14 – 17 ára unglinga. Vinnuhóparnir sinna umhirðu, ræktun, viðhaldi og fleiri verkefnum, oft í tengslum við garða, íþrótta- og útivistarsvæði. Verkefnin geta verið nokkuð fjölbreytt svo sem að gróðursetja, slá og raka, hreinsa beð, grisja skóg, mála, tína rusl, sópa, þrífa, smíða og leggja hellur, grasþökur eða göngustíga.

Helstu verkefni
  • úthluta verkefnum og leiðbeina um vinnubrögð
  • skipulagning uppákoma í tengslum við vinnuna
  • gæta að og ganga frá áhöldum og vélum sem notuð eru
  • samskipti við forráðamenn
  • skrifa vinnuskýrslur og umsagnir
Hæfnikröfur

Flokkstjóri í vinnuskóla þarf að vera fær í samskiptum ásamt því að geta verið unglingum góð fyrirmynd. Vinnusemi, stundvísi og sjálfstæði í starfi eru jafnframt mikilvægir kostir. Í Reykjavík er lágmarksaldur leiðbeinenda 22 ár auk þess sem gerð er krafa um framhaldsskólamenntun.

Námið

Ekki er gerð formleg krafa um menntun til að gegna starfi flokkstjóra í vinnuskóla en reynsla af starfi með unglingum er æskileg auk þess sem gott er að þekkja til agastjórnunar, líkamsbeitingar í vinnu, skyndihjálpar og vinnuverndar.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Blómaskreytir

Búfræðingur

Danskennari

Dýralæknir

Einkaþjálfari

Félags- og tómstundaliði

Félagsráðgjafi

Fiskeldisfræðingur

Náms- og starfsráðgjöf