Fjármálastjórar bera ábyrgð á fjármálum fyrirtækja og gerð fjárhagsáætlana. Í starfinu felst að ákveða hvernig ráðstafa skuli fjármunum, meta áhættu í fjárfestingum og greiða arð. Verkefni fjármálastjóra felst í yfirumsjón með ráðstöfun fjár, tekjuöflun, innheimtu, útborgun, lántöku, varðveislu fjármuna og verðbréfa til að hámarka virði viðkomandi fyrirtækisins.
Sem fjármálastjóri gætirðu starfað hjá stórum sem smáum fyrirtækjum, opinberum stofnunum eða hlutafélögum, oftast í nánu samstarfi við forstjóra eða eigendur.