Viðskiptafræði er grunnnám á háskólastigi. Í náminu er meðal annars farið í fjármálafræði og hagfræði, markaðsfræði og stjórnunarfræði, reikningshald og rekstrarhagfræði.
Náminu lýkur með BS/BSc prófi. Námstími er þrjú ár.
Viðskiptafræði er grunnnám á háskólastigi. Í náminu er meðal annars farið í fjármálafræði og hagfræði, markaðsfræði og stjórnunarfræði, reikningshald og rekstrarhagfræði.
Náminu lýkur með BS/BSc prófi. Námstími er þrjú ár.
Nám í viðskiptafræði hefur verið kennt við Háskólann á Bifröst, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, Viðskiptadeild Viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri og Viðskiptafræðideild Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.
Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám. Mismunandi er eftir skólum hvort próf frá frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík, háskólagátt Háskólans á Bifröst og verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis sé viðurkennt. Sjá nánar um inntökuskilyrði námsins við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík.
Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.
Nám í viðskiptafræði er fjölbreytt og hægt að sérhæfa sig á ýmsum sviðum sem breytileg eru eftir skólum. Námið er kennt í staðnámi við alla skóla, fjarnám hefur verið í boði við alla skóla nema Háskóla Íslands.
Sjá nánar um viðskiptafræðinámið hjá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Bifröst og Háskólanum í Reykjavík.
Að loknu BSc prófi er hægt að starfa sem viðskiptafræðingur. Möguleiki er að fara í framhaldsnám í viðskiptafræði eða öðrum greinum.
Náms- og starfsráðgjafar hjálpa til við upplýsingaleit og aðstoða að finna leiðir til að bæta færni í námi og efla í starfi.