Kranastjórar stýra ýmsum gerðum krana á byggingar- og hafnarsvæðum. Unnið er við að lyfta því sem ekki gengur að lyfta handvirkt s.s. margskonar vörum og búnaði.
Starfið fer oftast fram á iðnaðar- eða byggingarsvæðum og í tengslum við flutninga- og skipaiðnað. Vinnuumhverfið getur verið hættulegt og því eru gerðar miklar kröfur um öryggi en alla jafna er það rekstraraðila að tryggja að verkið fari fram á öruggan hátt.