Landverðir vinna fyrst og fremst yfir sumarmánuðina við móttöku gesta á friðlýstum svæðum. Í starfinu felst að veita upplýsingar um náttúru, staðhætti, sögu, tjaldsvæði, gönguleiðir, akvegi og annað sem ferðamenn vilja vita.

Í starfi sem landvörður er áhugi á náttúru og náttúruvernd mikill kostur ásamt þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum. Mikilvægt er að þekkja til umhverfismála, náttúruverndar, menningar og nærsamfélags, búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu auk verklagni og þekkingar á skyndihjálp.
Til að fá réttindi sem landvörður þarf að ljúka námskeiði í náttúruvernd og landvörslu sem Umhverfisstofnun stendur að ár hvert. Þurfa þátttakendur að vera orðnir 20 ára, með stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun eða reynslu. Á námskeiðunum er megináhersla lögð á:
Landvarðarréttindi má einnig öðlast í diplómanámi í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum.
Náms- og starfsráðgjafar hjálpa til við upplýsingaleit og aðstoða að finna leiðir til að bæta færni í námi og efla í starfi.