Klæðskurður er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni við sérsaum, sníðagerð og aðra fagvinnu sem tengist herrafatnaði.
Klæðskurður er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.