Geislafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er lögð áhersla á aðferðir geislafræðinnar til að skyggnast inn í mannslíkamann með myndgreiningu sem gegnir sífellt stærra hlutverki í greiningu og meðferð sjúkdóma. Fjallað er um röntgengeisla, segulsvið, útvarpsbylgjur, geislavirk efni, hljóðbylgjur og tölvutækni þar sem sjá má allt frá yfirborði stærri líffæra til starfsemi í frumum líkamans.
Í náminu er lagður grunnur að þekkingu á geislafræði auk undirbúnings fyrir réttindanám, áframhaldandi meistaranám eða starf sem geislafræðingur.
- Grunnnámi lýkur með BS gráðu
- Námstími er þrjú ár