NÁM

Slökkviliðsnám

Slökkviliðsnám er starfstengt og felst í að efla þekkingu og færni við almenn slökkviliðsstörf, reykköfun, björgunarstörf og viðbrögð við mengunar- og eiturefnaslysum.

Námið er samtals 620 kennslustundir.

Kennsla

Slökkviliðsnám hefur verið kennt við Brunamálaskólann sem heyrir undir Mannvirkjastofnun. Eins hefur Brunamálaskólinn staðið fyrir námi fyrir stjórnendur í atvinnuslökkviliðum, slökkviliðsmenn, stjórnendur og slökkviliðsstjóra í hlutastarfi og eldvarnareftirlitsfólk.

Kröfur

Nemendur eru ráðnir til starfa sem slökkviliðsmenn en við þá ráðningu er eftirfarandi haft til hliðsjónar:

  • Andlegt og líkamlegt heilbrigði en standast þarf læknisskoðun ásamt þrek- og styrktarprófi
  • Reglusemi, háttsemi, góð sjón og heyrn og rétt litaskynjun
  • Ekki haldin lofthræðslu eða innilokunarkennd
  • Aukin ökuréttindi að lokinni reynsluráðningu
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg menntun og reynsla

Námstími slökkviliðsmanna fer fram á ráðningartímabili þeirra og fá þeir laun samkvæmt samningi.

Námsskipulag

Slökkviliðsnám skiptist í fornám og atvinnuslökkviliðsnám. Nemandi lýkur 80 kennslustunda fornámi áður en hægt er að hefja störf sem atvinnuslökkviliðsmaður.

Nemandi þarf að hafa starfað í atvinnuslökkviliði í sex mánuði áður en 540 kennslustunda nám fyrir atvinnuslökkviliðsmenn hefst.

Að loknu námi

Námið veitir réttindi til að starfa sem slökkviliðsmaður.

Störf
Slökkviliðsmaður
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf