NÁM

Rafvélavirkjun

Rafvélavirkjun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að auka þekkingu og færni við uppsetningu og tengingu, eftirlit og viðgerðir hvers konar rafvéla og búnaðar á heimilum, fyrirtækjum og stofnunum. Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.

Rafvélavirkjun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er um fjögur ár auk starfsþjálfunar.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Sjá nánar á heimasíðu skóla.

Námið er að hluta til lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Rafvélavirkjun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Fyrstu tvö árin er farið í sameiginlegt grunnnám rafiðngreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í rafvélavirkjun. Hægt er að fara tvær leiðir í náminu:

  • Verknámsleið þar sem nemar taka fleiri faggreinar í skóla en á vettvangi og því styttri starfsþjálfun eða 24 vikur.
  • Samningsbundið iðnnám þar sem nemar gera samning við meistara og taka faggreinar þar – alls 48 vikur í starfsþjálfun.

 

Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs eða rafiðnfræði. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Rafvélavirki
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf