Lífeindafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er fjallað um um mannslíkamann, starfsemi hans, sjúkdóma og greiningar. Lagður er grunnur að þekkingu á lífeindafræði auk undirbúnings fyrir réttindanám, áframhaldandi meistaranám eða starf sem lífeindafræðingur sem eru „fólkið á bak við tjöldin“; vinna með sýni, að vísindarannsóknum og tækniþróun.
- Grunnnámi lýkur með BS gráðu
- Námstími er þrjú ár