NÁM

Skrifstofunám

Skrifstofuskólinn er starfstengt nám innan framhaldsfræðslunnar. Í því felst að auka faglega færni, til að mynda í þjónustu, við tölvuvinnu, ensku sem og almenna námsfærni. Námið er ýmist 160 eða 240 kennslustundir. Meta má námið til styttingar námi í framhaldsskóla allt að 18 einingum.
 
Fáðu frekari upplýsingar hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum.

Kennsla

Námið er innan framhaldsfræðslunnar og hefur verið kennt hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum, t.d. Framvegis – miðstöð símenntunarMími símenntun og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Fáðu frekari upplýsingar hjá þinni fræðslu- og símenntunarstöð. Þar geturðu einnig fengið upplýsingar um raunfærnimat sem fram hefur farið í greininni en þá er færni sem aflað er á vinnumarkaði metin til móts við nám í greininni.

Einnig gæti skrifstofunám verið í boði á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar.

Kröfur

Námið er ætlað fólki 20 ára eða eldra sem hefur stutta formlega skólagöngu að baki og vinnur almenn skrifstofustörf eða hefur hug á að skipta um starfsvettvang. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Farið er í ýmsar greinar til að auka þekkingu og skilning á starfi og starfsumhverfi á skrifstofu auk þess sem farið er í sjálfsstyrkingu og samskipti. Námsleiðin og lengd hennar getur verið breytileg eftir því hvar hún er kennd. Dag-, kvöld- og fjarnám kann að vera í boði.

Til að sjá betur hvernig námið er uppbyggt má nálgast námskrá þess hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Að loknu námi

Náminu er ætlað að auka faglega og persónulega þekkingu og færni við skrifstofustörf.

Störf
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf