Vöruflutninganám er starfstengt og á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að auka færni og þekkingu á flutningafræðum, flutningaferli, markaðs- og sölumálum. Eins er farið í þætti líkt og námstækni, íslensku, ritvinnslu, tölvu- og upplýsingatækni og vörumeðferð. Námið er 226 klukkustundir að meðtalinni 32 klukkustunda vinnustaðanámi.
Meta má námið til styttingar námi í framhaldsskóla til allt að 24 eininga en það er kennt innan framhaldsfræðslunnar. Fáðu frekari upplýsingar hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum.