Nokkur atriði sem við viljum biðja ykkur um að hafa í huga næstu daga:
- Leikmenn verða alltaf (algerlega undantekningalaust) að vera með armbönd vel fest á sig til að komast í mat á Hilton eða á aðra viðburði á vegum Rey Cup. Heil armbönd, föst á hendi veita aðgang.
- Hilton biður leikmenn um að fara ekki inn á hótelið á takkaskóm. Vinsamlega takið tillit til þess.
- Vinsamlega sýnið góða umgengni í skólum og á Hilton og bara alls staðar þá verður allt betra og einfaldara.
- Starfsfólk Hilton er mjög ánægt með framkomu leikmanna og var mjög gott að heyra það enda var ekki búist við öðru.
