Tækniteiknari vinnur við teikningar og uppdrætti ásamt hönnunarvinnu, framsetningu og útgáfu teikninga. Unnið er eftir vinnuteikningum, loftmyndum eða fyrirmælum frá hönnuðum og felst vinnan meðal annars í grunnteikningu og teikningum af húsum, innréttingum, landslagi, skipulagi eða vélum. Verkefnin eru alla jafna unnin í tvívíðum eða þrívíðum teikniforritum.

Í starfi sem tækniteiknari gætirðu til dæmis unnið á teiknistofu arkitekta, verkfræðistofu, með landslagsarkitektum eða hjá ríki og bæ.

Helstu verkefni
  • fullvinna teikningar, leiðrétta þær og breyta
  • setja inn skýringartexta og athugasemdir
  • skeyta saman teikningahluta
  • afgreiða teikningar og veita upplýsingar um þær
  • kynningarstörf, útlitshönnun og uppsetning smærri sýninga
  • samskipti við prentstofur um prentun, frágang og dreifingu teikninga
Hæfnikröfur

Í starfi tækniteiknara er vandvirkni mikill kostur en auk þess er mikilvægt að hafa skipulag á hlutunum við grafíska framsetningu teikninga og gagna. Tækniteiknari vinnur mikið við tölvu og þarf að hafa góð tök á hugbúnaði sem tengist framsetningu og útgáfu teikninga.

Tækniteiknari þarf að þekkja til einfaldrar myndvinnslu og hluta á borð við teiknigrunna, teikningaskrár, teikninganúmerakerfi og höfundarétt.

Námið

Tækniteiknun er kennd í Tækniskólanum. Meðalnámstími er þrjú ár.

Tækniteiknun
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Forritari

Kerfisfræðingur

Leikjaforritari

Tæknifræðingur

Verkfræðingur

Náms- og starfsráðgjöf