STARF

Sorphreinsunarbílstjóri

Bílstjórar á sorphreinsibílum aka samkvæmt fyrirfram ákveðnu skipulagi og eru flokksstjórar þeirra sem tæma sorptunnur. Í smærri sveitarfélögum sjá þeir einir um sorphirðuna.

Í starfi bílstjóra sorphreinsibifreiðar ertu í samstarfi við verkstjóra, aðra bílstjóra, sorphreinsunarmenn og viðskiptavini.

Helstu verkefni
  • sækja starfsmenn að morgni
  • fylgja starfsmönnum eftir á bíl svo tunnulosun taki sem skemmstan tíma
  • fylgjast með að engin hús verði eftir í rusltæmingu
  • fylgjast með því sem gerist bak við bílinn
  • losa rusl úr bíl í sorpeyðingarstöð
Hæfnikröfur

Til að geta starfað sem sorphreinsunarbílstjóri þarf aukin ökuréttindi (meirapróf) en á gámastöðvum er einnig gerð krafa um vinnuvélaréttindi og réttindi til að aka með tengivagn.

Námið

Nám til aukinna ökuréttinda (meirapróf) til að aka gáma- eða sorphreinsibifreið má hefja 6 mánuðum fyrir 21 ára aldur. Til þess þarf að hafa almennt bílpróf og uppfylla aðrar þær reglur sem hið opinbera setur.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Bílamálari

Blómaskreytir

Dýralæknir

Fiskeldisfræðingur

Flotastjóri

Flugumferðarstjóri

Flugvirki

Fornleifafræðingur

Náms- og starfsráðgjöf