Safnverðir hafa umsjón með skráningu og flokkun safnmuna, taka þátt í uppsetningu sýninga ásamt því að taka á móti gestum og leiðsegja á sýningarsvæði eða í safni.

Í starfi safnvarðar gætirðu haft umsjón með safni eða sögulegum stöðum. Margir safnverðir sérhæfa sig á ákveðnu sviði svo sem í tengslum við náttúru, listir eða sögu.

Helstu verkefni
  • umsjón með daglegum rekstri safns
  • afla, geyma og sýna muni
  • setja upp sýningar, sjá um hönnun þeirra og þemu
  • kynning á safni fyrir almenning
  • halda munum hreinum
Hæfnikröfur

Safnvörður þarf að hafa mikinn áhuga á sögu og varðveislu safnmuna. Skipulagshæfni, nákvæm vinnubrögð og frumkvæði eru gagnlegir kostir í starfi safnvarðar auk færni í mannlegum samskiptum, tungumála- og tölvukunnáttu.

Námið

Alla jafna er ekki er farið fram á sérstaka menntun til að gegna starfi safnvarðar þó margvísleg menntun geti verið gagnleg, til að mynda í sagnfræði, fornleifafræði, listfræði, þjóðfræði eða mannfræði. Safnafræði er kennd við Háskóla Íslands sem 30 eininga viðbótardiplóma og til meistaragráðu.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Aðstoðarskólastjóri

Áhrifavaldur

Almannatengill

Blaða- og fréttamaður

Blaðberi

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Bókbindari

Bóksali

Náms- og starfsráðgjöf