STARF

Prestur

Prestar stýra helgihaldi og margs konar trúarlegum athöfnum, fræðslu og stuðningsþjónustu fyrir almenning. Í starfinu felst einnig að útskýra kennisetningar trúarinnar og tengja þær lífi fólks í samtímanum.

Í starfi sem prestur gætirðu haft umsjón með safnaðarstarfi í kirkju í samvinnu við aðra eða sinnt sérhæfðari þjónustu til dæmis sem sjúkrahúsprestur, fangaprestur eða prestur á vegum félagasamtaka.

Helstu verkefni
  • undirbúa og flytja predikanir og messur
  • framkvæma skírnir, hjónavígslur og fermingar og annast útfarir
  • sjá um færslu kirkjubóka og skila skýrslum til hins opinbera
  • heimsækja sjúka og aldraða og sinna þeim sem þurfa huggunar við
  • vinna að sáttum manna í millum
Hæfnikröfur

Prestar þurfa að búa yfir samkennd, hjálpsemi og hæfileikum í mannlegum samskiptum. Heiðarleiki og samviskusemi eru nauðsynlegir kostir ásamt áhuga á kristilegum málefnum. Þá er hæfileiki til að miðla málum einnig mikilvægur eiginleiki og nokkur tungumála- og tölvukunnátta æskileg.

Kirkjan.is

Námið

Í guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands er hægt að læra guðfræði til BA – gráðu sem er þriggja ára nám. Nám til embættisprófs er tveggja ára nám til viðbótar en ýmis konar framhaldsnám er einnig í boði.

Guðfræði - embættisnám til prests
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Afbrotafræðingur

Bókmenntafræðingur

Eðlisfræðingur

Efnafræðingur

Félagsfræðingur

Fornleifafræðingur

Forritari

Geðlæknir

Náms- og starfsráðgjöf