STARF

Öryggisvörður

Öryggisverðir sinna fyrirbyggjandi eftirliti, staðbundnu sem og farandgæslu eða eftirliti frá stjórnstöð. Í starfinu felst að gæta fólks og verð­mæta til varnar þjófnaði, vatnsskaða, eldi, slysum og skemmdarverkum.

Öryggisverðir starfa í fyrirtækjum, í tengslum við híbýli fólks og við eftirlit á opnum eða lokuðum svæðum. Einnig starfa öryggisverðir til dæmis í verslunarmiðstöðvum og sinna þar einnig vandamálum, sem upp koma, á borð við búðahnupl.

Helstu verkefni
  • öryggisgæsla og eftirlit með mannaferðum eða búnaði
  • bregðast við boðum frá neyðarhnöppum og öryggiskerfum
  • annast flutning verðmæta
  • vakta öryggis- og hússtjórnarkerfi
  • lyklavarsla, opnanir og lokanir húsa
  • móttaka þjónustubeiðna og upplýsingaþjónusta
Hæfnikröfur

Öryggisverðir þurfa alla jafna að hafa hreint sakavottorð auk kunnáttu í ensku, íslensku og á tölvur. Ýmis námskeið eru í boði fyrir öryggisverði oft tengd einstaka starfsstöðum og fyrirtækjum.

Námið

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur gefið út námskrá fyrir öryggisverði. Námskrána má meta til styttingar náms í framhaldsskóla. Nánari upplýsingar gefa símenntunarmiðstöðvar.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Afbrotafræðingur

Náms- og starfsráðgjöf