STARF

Netagerðarmaður

Netagerðarmenn gera við veiðarfæri auk þess að koma að hönnun þeirra og framleiðslu. Þeir geta, til að mynda, hannað og sett upp netabúnað eldiskvía fyrir strandeldis- og landstöðvar. Netagerð er löggilt iðngrein.

Sem netagerðarmaður gætirðu starfað í netagerð, á veiðarfæraverkstæði eða í öðrum fyrirtækjum sem sérhæfa sig í búnaði fyrir fiskiðnað.

Helstu verkefni
  • gera líkan af veiðarfærum
  • teikna veiðarfæri og eldiskvíar
  • sauma og leysa saman einstaka netahluta veiðarfæra
  • útbúa fótreipi, festa flot og þyngja veiðarfæri
  • mæla veiðarfæri með tilheyrandi mælitækjum
  • meta ástand veiðarfæra og álykta um viðgerðar- og endurnýjunarþörf
Hæfnikröfur

Netagerðarmenn þurfa að þekkja til gildandi laga og reglugerða um lágmarksmöskvastærðir, umbúnað veiðarfæra og öryggismál í faginu. Einnig er mikilvægt að kunna skil á:

  • framleiðsluaðferðum við gerð veiðarfæra sem notuð eru við Ísland
  • lögun veiðarfæra og efnum til veiðarfæragerðar
  • flokkun og þróun veiðarfæra
  • hegðun nytjafiska og viðbrögð þeirra við veiðarfærum
  • takmörkunum á heimildum til notkunar veiðarfæra við landið

 

Í starfi netagerðarmanns þarf einnig að þekkja skaða sem veiðarfæri í sjó geta valdið og taka tillit til þess við hönnun og framleiðslu. Í starfinu er unnið með net, kaðla, víra, lása, keðjur, bobbinga og blý ásamt ýmis konar handverkfærum.

Félag vélstjóra og málmtæknimanna

Námið

Netagerð er kennd í Fisktækniskólanum. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtalinni starfsþjálfun.

Raunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.

Netagerð
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Aðstoð í málmiðnaði

Blikksmiður

Kælitæknir

Málmsuðumaður

Rennismiður

Stálsmiður

Tæknifræðingur

Tækniteiknari

Náms- og starfsráðgjöf