Náms- og starfsráðgjafar aðstoða við að þróa og móta náms- og starfsferil fólks sem til þeirra leitar. Starfið tengist þannig öllum skólastigum, sí- og endurmenntun og vinnumarkaði þar sem veitt er ráðgjöf við náms- og starfsval og fræðsla um nám, störf og atvinnulíf.

Náms- og starfsráðgjafi er löggilt starfsheiti.

Náms- og starfsráðgjafar starfa við ráðgjöf í skólum, fræðslustörf í fyrirtækjum og símenntun, atvinnuleit og endurhæfingu á vinnumarkaði. Verkefnin geta verið nokkuð ólík eftir því hvort um er að ræða ráðgjöf í skólakerfi eða atvinnulífinu.

Helstu verkefni
  • fræðsla um nám og störf
  • leiðbeina um vinnubrögð í námi
  • persónuleg ráðgjöf og stuðningur
  • ráðgjöf, hagsmunagæsla og upplýsingamiðlun
  • vinna við áhugagreiningu og áhugasvið
  • mat og greining á náms- og starfsfærni
  • miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum
Hæfnikröfur

Náms- og starfsráðgjafar sækja starfsleyfi til menntamálaráðuneytis og er slíkt leyfi veitt þeim sem lokið hafa viðurkenndu háskólanámi í náms- og starfsráðgjöf. Í starfinu er nauðsynlegt að þekkja vel til íslensks skólakerfis og atvinnulífs, lagaumhverfis í náms- og starfsráðgjöf auk þess sem mikilvægt er að virða faglegar takmarkanir og þagnarskyldu þegar við á.

Félag náms- og starfsráðgjafa

Námið

Náms- og starfsráðgjöf er tveggja ára háskólanám á meistarastigi að loknu þriggja ára grunnnámi.

Náms- og starfsráðgjöf
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Afbrotafræðingur

Blaða- og fréttamaður

Blaðberi

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Bókbindari

Bókmenntafræðingur

Bréfberi

Dagforeldri

Náms- og starfsráðgjöf