Leikmyndahönnuðir teikna leikmyndir í mismunandi hlutföllum og gera módel af sviði sem leikmunir eru mátaðir inn í. Í starfinu er unnið með ýmis efni, liti og áferð sem þörf er á til þess að fá fram mismunandi hönnun.

Leikmyndahönnuðir geta unnið í stórum sem smáum leikhúsum, í sjónvarpi eða við kvikmyndagerð, oft í samstarfi við leikstjóra og búningahönnuði vegna heildarútlits sýninga.

Helstu verkefni
  • lestur handrits og heimildavinna til undirbúnings
  • hanna leikmynd og ákveða útlit hennar í samvinnu við leikstjóra
  • búa til grunnhugmynd og vinna skissur
  • teikna upp leikmynd á pappír eða í tölvuforriti ásamt því að gera módel úr pappír, tré eða öðru efni
  • ákveða efnisnotkun, liti og áferð leikmyndar og umhverfis
  • koma hugmyndum áfram til leikmyndasmiða með vinnuteikningum
Hæfnikröfur

Leikmyndahönnuðir þurfa að geta gert vinnuteikningar og unnið með kvarða, hlutföll og rými. Nauðsynlegt er að þekkja hvernig á að vinna með tiltekin efni, liti og ná fram ákveðinni áferð. Gott hugmyndaflug, áhugi á hönnun, skipulagshæfileikar og hæfni til að starfa með öðrum eru allt mjög gagnlegir eiginleikar í starfi leikmyndahönnuðar.

Bandalag íslenskra listamanna

Námið

Sérnám í leikmyndahönnun er ekki kennt á Íslandi en ýmis konar starfstengd námskeið kunna að standa til boða. Leikmyndahönnuðir eru oft myndlistarmenntaðir en nám í myndlist er til dæmis í boði á listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Myndlistaskólann í Reykjavík, Myndlistaskólann á Akureyri og myndlistardeild Listaháskóla Íslands. 

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Dansari

Fatahönnuður

Gervahönnuður

Hljóðhönnuður

Listfræðingur

Skjalavörður

Tækniteiknari

Náms- og starfsráðgjöf