Iðnfræðingar starfa víða í atvinnulífinu við ýmis konar sérfræði- og tæknistörf oft við hlið verk- og tæknifræðinga við hönnun, ráðgjöf eða kennslu.
Iðnfræðingar starfa víða í atvinnulífinu við ýmis konar sérfræði- og tæknistörf oft við hlið verk- og tæknifræðinga við hönnun, ráðgjöf eða kennslu.
Iðnfræðingur er lögverndað starfsheiti og þarf að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði auk iðnfræðinámsins til að útskrifast sem iðnfræðingur en sækja þarf um starfsheitið til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis.
Iðnfræði hefur verið kennd við Háskólann í Reykjavík og skiptist í þrjár brautir auk almennrar rekstrarfræði sem opin er fleirum; byggingariðnfræði, rafiðnfræði og véliðnfræði. Um er að ræða diplómanám samhliða vinnu.
Náms- og starfsráðgjafar hjálpa til við upplýsingaleit og aðstoða að finna leiðir til að bæta færni í námi og efla í starfi.