STARF

Hársnyrtir

Starf hársnyrtis felst í að kynna sér óskir viðskiptavina, skoða hár og meta hvaða meðhöndlun hentar því best. Hársnyrtir velur klippingu í samráði við viðskiptavin, þvær hárið og nærir ef þörf krefur og gefur góð ráð um meðferð hársins. Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein.

Sem hársnyrtir gætirðu unnið sjálfstætt eða á hárgreiðslustofu og átt samvinnu við aðrar faggreinar um ýmislegt sem varðar hár og tísku.

Helstu verkefni
  • klippa, lita, greiða og þurrka hár
  • lita hár á mismunandi hátt
  • setja permanent í hár
  • forma og raka skegg
  • selja hársnyrtivörur og leiðbeina um notkun þeirra
Hæfnikröfur

Hársnyrtiiðn krefst ákveðinnar samhæfingar hugar, handa og sjónar sem ekki síst er mikilvæg gagnvart viðskiptavinum vegna notkunar á áhöldum á borð við skæri, rakvélar og hitajárn. Hársnyrtir þarf að geta leitað eftir óskum viðskiptavina auk þess sem æskilegt er að vera í góðu líkamlegu formi þar sem starfinu fylgir talsvert álag á stoðkerfi líkamans.

Gott er að geta beitt fjölbreyttum aðferðum við vinnuna, hafa þekkingu á eiginleikum hárs og meðhöndlun kemískra efna. Þá er mikilvægt er að hársnyrtir fylgist með tískustraumum í faginu og tileinki sér nýjungar.

Félag hársnyrtisveina

Námið

Hársnyrtiiðn er kennd í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestraTækniskólanumVerkmenntaskóla Austurlands og Verkmenntaskólanum á Akureyri auk þess sem tveggja ára grunnnám er í boði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólann á Ísafirði.

Meðalnámstími er fjögur ár og skiptist í sex anna nám í skóla auk starfsþjálfunar. Raunfærnimat hefur farið fram og/eða kann að vera í boði.

Hárakademían er einkarekinn hársnyrtiskóli sem býður upp á styttingu á námi í hársnyrtiiðn og undirbýr nemendur til sveinsprófs í greininni.

Hársnyrting
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Blómaskreytir

Búningahönnuður

Fatahönnuður

Fatatæknir

Förðunarmeistari

Gull- og silfursmiður

Innanhúsarkitekt

Klæðskeri

Náms- og starfsráðgjöf