STARF

Grunnskólakennari

Störf grunnskólakennara felast í sérgreina- eða bekkjarkennslu ásamt því að þjálfa nemendur í félagslegum samskiptum, tjáningu, skipulegum vinnubrögðum og umgengni. Grunnskólakennari er lögverndað starfsheiti.

Í starfi sem grunnskólakennari gætirðu haft umsjón með bekk og/eða sérhæft þig á ákveðnu sviði í bók- eða verklegum námsgreinum. Starfinu fylgir mikil samvinna við foreldra og starfsmenn skóla og tengdra stofnanna.

Helstu verkefni

• skipuleggja nám og kennslu
• kynna og útskýra námsefni fyrir nemendum
• námsefnisgerð og fyrirlögn verkefna, æfinga og kannana
• meta árangur nemenda
• þjálfa nemendur í góðri umgengni
• fylgjast með mætingu nemenda
• styðja nemendur í samskiptum og persónulegum málum
• sitja kennarafundi og taka þátt í mótun skólastarfs

Hæfnikröfur

Grunnskólakennarar fá starfsleyfi frá menntamálaráðuneyti og þurfa að hafa lokið meistaraprófi á háskólastigi. Grunnskólakennari þarf að hafa hæfni til að starfa sjálfstætt og getu til að mynda góð tengsl við nemendur, forráðamenn og samstarfsfólk. Í starfinu eru sköpunargáfa, þolinmæði og gott tímaskipulag miklir kostir ásamt því að hafa til að bera hæfni til að stjórna bekkjum og takast á við krefjandi hegðun barna og unglinga.

Námið

Til að verða grunnskólakennari þarf að ljúka fimm ára háskólanámi til meistaragráðu sem gefur löggilt kennararéttindi. Slíkt nám er í boði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri.

Kennarafræði
Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Danskennari

Félagsráðgjafi

Framhaldsskólakennari

Kirkjuvörður – meðhjálpari

Sálfræðingur

Skólaritari

Starf í íþróttahúsi

Stuðningsfulltrúi í skóla

Náms- og starfsráðgjöf