STARF

Danshöfundur (kóreógraf)

Danshöfundur eða kóreógraf skapar og hannar fagurfræðilega útfærslu dansverka og danshreyfinga.  Unnið er við uppsetningu danssýninga, hvort tveggja eigin verkefni og annarra.

Danshöfundar sem vinna að eigin uppsetningum bera ábyrgð á  öllum þátttakendum; dönsurum, leikurum, tónlistarfólki, búningahönnuðum og sviðsmönnum auk þess að halda utan um framleiðslu og stjórnun.

Margir danshöfundar búa einnig yfir reynslu sem atvinnudansarar og geta sérhæft sig í mismunandi stílum á borð við ballett, hiphopp, djassballett eða nútímadans.

Helstu verkefni
  • Danshönnun; hreyfingar í viðkomandi dansverki
  • æfingar með dönsurum

Danshöfundar geta unnið sjálfstætt að eigin verkefnum, í leikhúsum, fyrir sjónvarp eða annars staðar þar sem dans er kenndur og iðkaður.

Hæfnikröfur

Í starfi danshöfundar er sköpunargáfa mikilvægur eiginleiki auk þekkingar á dansi og danshreyfingum. Einnig þarf að geta stýrt verkefnum og eiga gott með að setja sig í spor annarra. Mikilvæg forsenda þess að gerast danshöfundur er að brenna fyrir einhverju sem ástæða er til að koma á framfæri með dansi.

Að hluta byggt á Utdanning.no – Koreograf

Námið

Dansnám á háskólastigi er í boði við Listaháskólann auk þess sem dansnám getur verið hluti af  listnámsbrautum framhaldsskóla. Þá er yfirlit dansskóla að finna á vefsíðu FÍLD. Meistaranám í kóreógrafíu er víða í boði við erlenda háskóla.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Búningahönnuður

Dansari

Danskennari

Gervahönnuður

Grafískur hönnuður

Hljóðhönnuður

Landslagsarkitekt

Náms- og starfsráðgjöf