STARF

Dansari

Dans er sjálfstæð og fjölbreytt listgrein. Danssviðið rúmar margs konar dansafbrigði en dans getur einnig verið hluti af leikriti, söngleik eða óperu svo dæmi séu tekin.

Flestir atvinnudansarar hafa dansað frá unga aldri enda ekki um að ræða starf sem skólaganga ein og sér skilar. Til að ná árangri þarf bæði mikinn áhuga og stífar æfingar. Dansarar geta unnið sjálfstætt, sett saman eigin dansverkefni og sameinað þannig sköpunarferlið og dansinn sjálfan. Annars taka atvinnudansarar ýmist þátt í styttri sjálfstæðum dansverkefnum eða uppsetningum leikhúsa, óperu eða Íslenska dansflokksins.

Helstu verkefni

Þrjár megingreinar dans sem sviðslista eru:

  • klassískur ballett
  • djassballett
  • nútímadans/samtímadans
Hæfnikröfur

Í starf atvinnudansara þarf góða líkamsbyggingu, mikla hreyfigetu, gott tóneyra og úthald. Að geta unnið með öðrum er afar mikilvægt sem og að geta tekið þátt í skapandi vinnu. Starfið er mjög líkamlega krefjandi en einnig er andlegur styrkur mikilvægur; að geta einbeitt sér og stefnt að settu marki.

Að mestu byggt á Utdanning.no – Danser

Félag íslenskra listdansara

Námið

Dansnám á háskólastigi er í boði við Listaháskólann auk þess sem dansnám getur verið hluti af  listnámsbrautum framhaldsskóla. Þá er yfirlit dansskóla að finna á vefsíðu FÍLD.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Gervahönnuður

Hljóðhönnuður

Leikmyndahönnuður

Listfræðingur

Skjalavörður

Náms- og starfsráðgjöf