Störf áhrifavalda snúnast um markaðssetningu fyrir hönd ýmissa auglýsenda. Starfsheitið er nýlegt og er haft um þau sem fá greitt fyrir að vekja athygli á ákveðinni vöru, fyrirtækjum eða þjónustu fyrir milligöngu samfélagsmiðla.

Um getur verið að ræða markaðssetningu fyrir mismunandi auglýsendur í  atvinnugreinum sem gjarnan tengjast tísku, lífsstíl eða ferðalögum. Áhrifavaldar eru eins konar milliliður á milli auglýsenda og þeirra sem hugmyndin er að ná til.

Áhrifavaldar safna gjarna til sín töluverðum fjölda fylgjenda í gegnum bloggsíður, YouTube eða miðla á borð við Facebook, Instagram og Snapchat. Í störfum sínum þurfa áhrifavaldar að fylgja reglum Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar.

Áhrifavaldar starfa ekki beint hjá einhverjum einum heldur vinna sjálfstætt, oft í gegnum tímabundna samninga við nokkur mismunandi fyrirtæki á sama tíma eða í tengslum við  einstaka vörumerki.

Helstu verkefni
  • útbúa og birta efni fyrir hönd auglýsenda
  • taka myndir, setja saman myndbönd og skrifa umsagnir
  • markaðssetning á vörum og sjálfum sér sem vörumerki
  • viðhalda og fjölga fylgjendum á samfélagsmiðlum
  • finna, sinna og halda sambandi við viðskiptavini
  • sækja viðburði og fjölmiðlaumfjöllun
Hæfnikröfur

Í starfi sem áhrifavaldur þarf að búa yfir ákveðni, framtakssemi, einbeitni og söluhæfileikum ásamt því að geta byggt upp traust og eiga auðvelt að komast í samband við fólk og vinna með því. Vinnan felst í að hafa áhrif á viðhorf og gjörðir annarra. Því þarf að hafa þekkingu á notkun samfélagsmiða sem og þeirri vöru og auglýsanda sem unnið er með hverju sinni.

Byggt á: Utdanning.no – Influencer

Námið

Ekki er gerð krafa um sérstakt nám til að verða áhrifavaldur en heppileg menntun gæti tengst þáttum á borð við markaðssetningu, samskiptum eða frumkvöðlastarfsemi.

Ekki fyrir þig?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Tengd störf

Aðstoð í verslun

Blaða- og fréttamaður

Blaðberi

Blómaskreytir

Bókari

Bókasafns- og upplýsingafræðingur

Bókbindari

Bréfberi

Náms- og starfsráðgjöf