Skimunarlisti

Bílamálun

Markmiðið með því að fylla út þennan skimunarlista er að þú getir lagt fyrsta mat á hvort þú átt erindi í raunfærnimat. Niðurstaðan er aðeins vísbending um hvort ástæða sé til að skoða næstu skref með ráðgjafa.

Bílamálarar þurfa að geta unnið sjálfstætt og skipulega. Forsendur fyrir raunfærnimati eru að þú hafir öðlast talsverða færni og er gerð krafa um 23 ára lífaldur og 3 ára starfsreynslu í faginu.

Ekki þarf að hafa þekkingu á öllum þáttum til að eiga erindi í raunfærnimat.

Færniviðmiðum er skipt upp í flokka og skalinn hér fyrir neðan notaður.

Neðst í hverjum flokki er kassi þar sem þú getur bætt við atriðum eða skýrt frekar út þína hæfni. Endilega notaðu þá.

1

Lítil þekking/færni

2

Nokkur þekking/færni

3

Góð þekking/færni

4

Mikil þekking/færni

Almennt yfirlit​

Tæki og efni

Málun og sprautuklefi

Plastviðgerðir

Tjón og mat

Náms- og starfsráðgjafi getur leiðbeint þér um framhaldið, meðal annars fundið út hvort og hvenær raunfærnimat er að hefjast í greininni.

Náms- og starfsráðgjöf