NÁM

Tannlæknisfræði

Tannlæknisfræði er grunnnám á háskólastigi. Meginmarkmið námsins er að auka þekkingu nemenda í tann- og munnvísindum svo þeir geti stundað tannlækningar sjálfstætt. Í náminu er meðal annars farið í hvers konar fyrirbyggjandi aðgerðir og viðgerðir í munni ásamt þekkingu í lyfjafræði, efnafræði og líffræði.Tannlæknisfræði er löggilt heilbrigðisgrein.

Náminu lýkur með kandídatsprófi. Námstími er sex ár.

Námsvalshjól Háskóla Íslands

Kennsla

Nám í tannlæknisfræði er kennt við tannlæknadeild Háskóla Íslands.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf  af bóknámsbraut eða sambærilegt nám.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í tannlæknisfræði er fræðilegt og verklegt og fer fram í staðnámi. Námið er einungis hægt að stunda sem aðalgrein.

Farið er í undirstöðugreinar tannlæknisfræðinnar á fyrsta og öðru ári, lögð áhersla á verklegar æfingar á þriðja ári og á vinnu með sjúklingum á fjórða til sjötta ári.

Í desember í lok fyrstu annar er haldið samkeppnispróf.

Að loknu námi

Námið veitir rétt til að sækja um starfsréttindi til Landlæknisembættis og geta nemendur að því loknu starfað sem tannlæknar.

Störf
Tannlæknir
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf