Táknmálsfræði og táknmálstúlkun er nám á háskólastigi. Í náminu er leitast við að kenna nemendum færni í íslensku táknmáli og veita þeim þekkingu á menningarheimi heyrnarlausra. Nemendur fá þjálfun í málnotkun, málfræði táknmálsins og fræðslu um menningu og sögu heyrnarlausra.

  • Náminu lýkur með BA – gráðu
  • Námstími er þrjú ár

Námsvalshjól Háskóla Íslands

Kennsla

Nám í táknmálsfræði og táknmálstúlkun hefur verið kennt innan Íslensku- og menningardeildar Hugvísindasviðs Háskóla Íslands.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt próf. Ekki er gerð krafa um kunnáttu í íslensku táknmáli við upphaf námsins. 

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið byggir á fyrirlestrum, samræðu og hópavinnu. Áhersla er lögð á þátttöku nemenda í tímum, sérstaklega þar sem fram fer þjálfun í málnotkun og túlkun.

Ýmist er kennt á íslensku eða íslensku táknmáli.

Að loknu námi

Eftir 180 eininga nám í táknmálsfræði (aðalfag) og táknmálstúlkun útskrifast nemendur sem táknmálstúlkar.

Störf
Táknmálstúlkur
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf