NÁM

Stuðningsfulltrúanám

Stuðningsfulltrúanám fyrir þá sem starfa í grunnskólum er starfstengt og á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að auka þekkingu og færni til að vera kennurum til aðstoðar við að sinna nemendum sem þurfa aukinn stuðning. Farið er í aðferðir og kenningar varðandi þroskaferil barna og unglinga. Raunfærnimat hefur farið fram í greininni en þá er metin færni sem aflað er á vinnumarkaði.

Meðalnámstími er tvö til þrjú ár að meðtalinni níu eða tólf vikna starfsþjálfun.

Kennsla

Stuðningsfulltrúanám hefur verið kennt við Verkmenntaskóla Austurlands auk Fjarmenntaskólans og Félagsvirkni- og uppeldissviðs Borgarholtsskóla.

Stuðningsfulltrúabrú getur verið í boði við skólana þar sem stuðningsfulltrúanám er kennt sem og hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Undantekningar geta þó verið hjá einstaka skólum.

Í boði er nám á stuðningsfulltrúabrú en hún er til að auðvelda ófaglærðu fólki með starfsreynslu að öðlast starfsréttindi. Skilyrði eru að umsækjandi hafi náð 22 ára aldri, að lágmarki þriggja ára starfsreynsla og að hafa lokið starfstengdum námskeiðum.

Athugaðu hvort námið sé lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið skiptist í almennt bóknám, sérgreinar stuðningsfulltrúabrautar og vinnustaðanám.

Stuðningsfulltrúabrú er ætluð til styttingar á náminu og er eingöngu farið í sérgreinar, vinnustaðanám og starfsþjálfun.

Að loknu námi

Að námi loknu er hægt að vinna sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla.

Störf
Stuðningsfulltrúi í skóla
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf