NÁM

Sjávarútvegsfræði

Sjávarútvegsfræði er grunnnám á háskólastigi. Námið byggir á raun- og viðskiptagreinum með áherslu á sérnámskeið sjávarútvegs. Fjallað er um vistkerfi sjávar, veiðar, vinnslu sjávarafurða og stjórnun í sjávarútvegi. Er náminu ætlað að bæta stjórnun auðlinda og ýta undir sjálfbæra nýtingu þeirra ásamt aukinni verðmætasköpun.
 
Náminu lýkur með BS prófi. Námstími er þrjú ár.

Kennsla

Sjávarútvegsfræði er kennd við viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám. Æskilegt er að umsækjendur hafi grunnþekkingu á náttúruvísindum, sjá nánar um inntökuskilyrði.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Námið byggist á skyldu- og valnámskeiðum og er bæði kennt í staðnámi og fjarnámi.

  • Nemendur taka námskeið öll árin
  • Lokaverkefni er unnið á þriðja ári
Að loknu námi

Að loknu BS prófi er hægt að starfa sem sjávarútvegsfræðingur. Möguleiki er að fara í framhaldsnám í auðlindafræðum sem og ýmsum öðrum greinum.

Störf
Sjávarútvegsfræðingur
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf