NÁM

Rafveituvirkjun

Rafveituvirkjun er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Í náminu felst að auka þekkingu og færni við uppsetningu, mælingar og viðhald lagna og búnaðar til flutnings og dreifingar raforku frá framleiðslu til notkunar. Hugsanlegt er að fá færni sem aflað er á vinnumarkaði metna.

Rafveituvirkjun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fjögur ár auk starfsþjálfunar.

Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Sjá nánar á heimasíðu skóla.

Námið hefur að hluta til verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Rafveituvirkjun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Fyrstu tvö árin er farið í sameiginlegt grunnnám rafiðngreina en eftir það sérhæfa nemendur sig í rafveituvirkjun. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs eða rafiðnfræði. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Rafveituvirki
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf