NÁM

Prentsmíði/Grafísk miðlun

Grafísk miðlun eða prentsmíði er starfstengt nám á framhaldsskólastigi. Meginmarkmið með náminu er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til að takast á við viðfangsefni greinarinnar, meðal annars hönnun og umbrot mynda og texta. Einnig vinnslu með gögn til prentunar og grafískrar hönnunar og framsetningu efnis fyrir prent-, net-og skjámiðla.

Grafísk miðlun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er þrjú til fjögur ár að meðtalinni starfsþjálfun þar sem fylgt er rafrænni ferilbók sem heldur utan um framvindu vinnustaðanámsins.

Kennsla

Grafísk miðlun hefur verið kennd við Tækniskólann- skóla atvinnulífsins.

 
Kröfur

Umsækjendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við Aðalnámskrá grunnskóla. Sjá nánar á heimasíðu skóla.

Námið hefur verið lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Fag- og stéttarfélög veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Grafísk miðlun skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar og starfsþjálfun. Athugaðu hvort námið eða hluti þess geti verið kennt í fjarnámi.

Fyrstu þrjár til fjórar annirnar er farið í grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Nemandi gerir námssamning við meistara í faginu þar sem starfsþjálfunin fer fram.

Að loknu námi

Að námi og starfsþjálfun lokinni er möguleiki á að fara í sveinspróf sem veitir rétt til starfa í greininni ásamt inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs. Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs.

Störf
Prentsmiður/grafískur miðlari
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf