Nám líffræði á háskólastigi byggir á aðferðum raunvísinda og hvernig þær leiða til nýrrar þekkingar í greininni. Fjallað er um einkenni tegunda, erfiðir og þróun, hegðun lífvera, samfélög og vistkerfi, útbreiðslu, breytingar á stofnstærð og áhrif umhverfisbreytinga á lífríkið.

  • Grunnnámi lýkur með BS – gráðu
  • Námstími er þrjú ár

Námsvalshjól Háskóla Íslands

Kennsla

Nám í líffræði er kennt innan Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands. Í boði er grunnnám til BS gráðu auk námsleiða til meistaragráðu.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám. Mælt er með að umsækjendur hafi lokið ákveðnum einingafjölda í stærðfræði og raungreinum.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í líffræði byggir á grunnnámskeiðum í greinum á borð við frumulíffræði, dýrafræði og grasafræði en á þriðja ári eru í boði fjölbreytt valnámskeið í fuglafræði, umhverfisfræði, fiskavistfræði, mannerfðafræði og fleiri greinum.

Að loknu námi

Líffræðingar vinna  margskonar störf svo sem við rannsóknir, bæði úti í náttúrunni og á rannsóknarstofum, hjá einkafyrirtækjum í líftækni, við umhverfismat vegna virkjana, við ráðgjöf og kennslu á öllum skólastigum.

Störf
Líffræðingur
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf