NÁM

Lífeindafræði

Lífeindafræði er nám á háskólastigi. Í náminu er fjallað um um mannslíkamann,  starfsemi hans, sjúkdóma og greiningar. Lagður er grunnur að þekkingu á lífeindafræði auk undirbúnings fyrir réttindanám, áframhaldandi meistaranám eða starf sem lífeindafræðingur sem eru „fólkið á bak við tjöldin“; vinna með sýni, að vísindarannsóknum og tækniþróun.

  • Grunnnámi lýkur með BS gráðu
  • Námstími er þrjú ár

Námsvalshjól Háskóla Íslands

Kennsla

Nám í lífeindafræði hefur verið kennt innan Læknadeildar Háskóla Íslands. Í boði er þriggja ára nám til BS gráðu, viðbótardiplóma til starfsréttinda og meistaranám.

Kröfur

Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærilegt nám.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

BS nám í lífeindafræði er hvort tveggja fræðilegt og verklegt. Fyrsta árið er áhersla á  almenna þekkingu á mannslíkamanum og efnafræði hans en síðan er fjallað um  sérsvið á borð við blóðmeinafræði, klíníska lífefnafræði, líffærameinafræði, sýklafræði, ónæmisfræði, erfðafræði og blóðbankafræði.

Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og mikil áhersla lögð á verklegt nám þar sem unnið er sjálfstætt eða í hóp, fjallað um efni nýjustu rannsóknagreina og reynt sig við raunveruleg sjúkdómstilfelli.

Að loknu námi

Lífeindafræðingar eru fólkið á bak við tjöldin á stöðum á borð við heilbrigðisstofnanir, lyfja- og líftæknifyrirtæki og á sjálfstæðum rannsóknastofum.

Störf
Lífeindafræðingur
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf