Iðnfræði er 90 eininga nám til diplómagráðu á háskólastigi sem hægt er að ljúka á þremur árum samhliða vinnu. Námið skiptist í þrjár brautir auk rekstrariðnfræði; byggingariðnfræðirafiðnfræði og véliðnfræði.

Kennsla

Iðnfræði hefur verið kennd við Háskólann í Reykjavík.

Kröfur

Með meistaranám í iðngrein eða stúdentspróf er hægt að hefja nám í iðnfræði án frekari undirbúnings en þau sem eingöngu hafa lokið bóklegu námi til sveinsprófs geta tekið allt að fjögur undirbúningsnámskeið í fjarnámi, samhliða iðnfræðináminu;  stærðfræði, eðlisfræði, íslensku og ensku.

Til að hefja nám í rekstrariðnfræði þarf að ljúka diplómanámi í byggingar-, raf-, eða véliðnfræði. Sjá nánar um inntökuskilyrði.

Námið er lánshæft til framfærslu og skólagjalda hjá Menntasjóði námsmanna. Fræðslusjóðir stéttarfélaga veita oft styrki til náms. Fáðu frekari upplýsingar hjá þínu félagi.

Námsskipulag

Nám í iðnfræði skiptist á fjórar mismunandi brautir; byggingariðnfræðirafiðnfræði og véliðnfræði auk almennrar rekstrarfræði.

Kennt er með fjarnámssniði samhliða tveimur staðbundnum helgarlotum á hverri önn þar sem teknar eru fyrir verklegar æfingar og einnig farið í fyrirtæki og verkefni unnin í raunumhverfi.

Að loknu námi

Iðnfræðingur er lögverndað starfsheiti og þarf að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði auk iðnfræðinámsins til að útskrifast sem iðnfræðingur.

Störf
Iðnfræðingur
Ekki þinn tebolli?

Skoðaðu aðra valmöguleika

Náms- og starfsráðgjöf